Fallegar konur í fallegum kjólum

tískusýning_01

Á Húnavöku sem haldin var á Blönduósi um síðastliðna helgi var meðal annars tískusýning á Heimisiðnaðarsafninu í tengslum við  yfirlitssýningu á verkum Guðrúnar J. Vigfúsdóttur veflistakonu frá Ísafirði. Konur úr héraði sýndu verk listakonunnar og var fjölmenni samankomið til að sjá hið fallega handverk 


Hvönn og kerfill koma hunangsflugunum vel

Bara svo fólk viti það þá teljast t.d. hvönn og kerfill til sveipjurta og því afar mikilvægar plöntur í hunangsframleiðslu þjóðarinnar
mbl.is Íslenskt hunang rannsakað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Háskólinn á Akureyri er kominn með nýtt merki

Þetta merki sem fylgir fréttinni er gamalt. Háskólinn er kominn með nýtt merki og er haft eftir gæðastjóra Háskólans að eftir að skipt var um merki hafi háskólinn verið rekinn samkvæmt fjárlögum.
mbl.is KEA úthlutar 7,6 milljónum króna úr Háskólasjóði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Allt upp á borðið

Það verður erfitt fyrir systur hennar á RÚV að fjalla um fréttir úr forsætisráðuneytinu eða um fréttir af ríkisstjórninni yfirleitt. Þó hæfar séu eru tengslin til trafala.
mbl.is Ragnhildur skipuð ráðuneytisstjóri í forsætisráðuneyti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Oft ratast kjöftugum satt orð á munn

Steingrímur á allan minn stuðning í þessu. Fólk sem er úr tengslum við grunn samfélagsis leitar einfaldra leiða til til að geta haldið áfram á velferðarsukkinu sem byggt er á sandi og trúir því að lausnin liggi hjá ESB. En það sem Steingrímur á eftir að gera er að sannfæra sitt fólk um  að auðlegð okkar liggur í auðlindum landsins og þær verðum við að nýta. Við verðum að trúa á okkur sjálf því þar liggur lausnin


mbl.is Elítan vill í ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hann á afmæli í dag

Snillingurinn Elton John á afmæli í dag á boðunardegi Maríu og er líklega 62 ára.  Þennan dag árið 1979 var haldið fyrsta heimsmeistaramótið í bananaáti þannig að þetta er býsna merkilegur dagur.
mbl.is Sir Elton John aftur til Watford
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Minnir á laskaða löpp

Svona við fyrstu sýn þá minnir merkið svolítið á laskaða löpp. Þarna er svona hvítur plástur eða sárabindi um kálfann til þess að draga úr sárasta verknum frá hægri (blár) og vinstri (rauður.  Löskuð löpp sem með rauðar tær og bláan legg.
mbl.is L-listinn kynnir merki sitt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lýðhylli Samvinnutrygginga-Benedikts í Háskólabíói

Benedikt Sigurðarson hefur notið lýðhylli í Háskólabíói, lófaklapp og hvaðeina fyrir sköruglega ræðu um stöðu mála í efnahagshruninu. Stjórnvöld hafa fengið ónot á sama stað, mitt í björgunaraðgerðunum. Það sem Benedikt stendur fyrir sem stjórnarmaður í Samvinnutryggingum verðskuldar ekki lófaklapp alþýðunnar að mínu mati. Eftir að hafa hlustað á Kastljósið í kvöld og fundinn í Háskólabíói á dögunum kemur upp í huga minn hin gullvægu orð" Dæmið eigi svo þér verðið ekki sjálfir dæmdir". Benedikt notar nákvæmlega sömu rök fyrir hruni Samvinnutrygginga og stjórnvöld nota fyrir bankahruninu. Ergó : Sömu rök, annar fær klapp því hann er fundarboðendum þóknanlegur, hinir eru fordæmdir fyrir nákvæmlega sömu rök. Hvar erum við á vegi stödd. Er lýðskrumið virkilega að verða ofan á í íslensku samfélagi. Kyngir fólk hverju sem er. 

Stúkufundur hjá "Heilagri vandlætingu"

    Það er með hreinum ólíkindum að sá maður sem hefur staðið í fararbroddi fyrir hvað mestu umbótum á Íslandi undangengin ár skuli verða á skömmum tíma höfuð andstæðingur þjóðarinnar. Einhverskonar samnefnari fyrir allt sem aflaga hefur farið í bankahruninu mikla. Hvað skyldi það vera sem fær fólk til að umpólast svona á skömmum tíma. Reyndar hefur Davíð ávallt verið umdeildur einfaldlega vegna þess að hann hefur verið staðfastur foringi og ekki kvikað frá þeirri stefnu sem ríkisstjórnir og borgarstjórnir sem hann hefur stýrt hafa fylgt. Reyndar hvikaði hann einu sinni en það var þegar ríkisstjórn undir hans forystu dró til baka fjölmiðlalögin margumræddu. Kannski voru það mestu mistök Davíðs á ferlinum að taka ekki slaginn til enda við þau öfl í samfélaginu sem réðu nánast öllum frjálsu fjölmiðlunum og stærstum hluta verslunar í landinu. Öfl sem enginn hafði kosið en nutu verndar forseta Íslands. Megin ástæða þess að lögin voru dregin til baka var sú að sundra ekki þjóðinni í tvær andstæðar fylkingar.

   Eftir að hafa hlustað á borgarafund í Háskólabíói í gær þar sem fyrirfram var ákveðið að klappað skyldi fyrir 4 framsögumönnum en einungis klappað fyrir þeim ráðamönnum sem sögðu eitthvað sem fólkið vildi heyra, varð mér órótt. Er virkilega svo komið að tími lýðskrumara sem hrópa í sífellu, frelsi, lýðræði, valdstjórnina burt, Davíð burt, sé kominn en hafa ekkert nýtt til málanna að leggja. Það minntist varla nokkur maður á "útrásarvíkingana" sem sett hafa Ísland á hliðina, mennina sem stjórnuðu umræðunni í samfélaginu, mennina sem sáu Davíð Oddsson sem sinn helsta andstæðing því hann vildi hafa á þeim hemil. Manninn sem skuldar íslensku bönkunum 1.000 miljarða, manninn sem er við það að uppskera margra ára árásir á Davíð í gegn um miðla sína með því að fá alþýðuna til að hrópa á torgum "Burt með Davíð"

   Ég segi alveg eins og er að mér fannst þessi fundur minna á dýragarðsferð stúkufélaga í félaginu "Heilög vandlæting" til að skoða Alþingisdýrin. Þingdýrin voru höfð á plani og gjá á milli líkt og í ísbjarnarbásnum í dýragarðinum og greinilegt að þingdýrunum var ekki skemmt eins og á við um flesta sem hafðir eru í búri. Reyndar benti einn fundarmaður á þetta en í öðru samhengi. Mér stendur ekki á sama um þróun mála. Er það virkilega svo að nægi bara að koma Davíð úr Seðlabankanum til að friða stúkufélagana. Ég segi nú bara eins og skáldið sem ekki er hægt að gefa út verk eftir. "Er ekki hægt að koma umræðunni á hærra plan". Ég stend með Birni Bjarnasyni, Davíð Oddssyni og nokkrum stúkufélaga sem vilja bankaleyndina burt því hún verndar bara þá sem hafa eitthvað að fela. Allt upp á borðið!


Þetta var sem okkur vantaði

Þetta var einmitt sem okkur vantaði inn í þjóðfélagsumræðuna í dag, bókin um Ólaf Ragnar þar sem hann eys yfir menn og málefni. Ég hélt í einfeldni minni að hlutverk forseta á erfiðleikatímum þjóðar væri að vera með henni og styrkja hana og létta henni leiðina út úr vandanum. Ég segi fyrir mig að mikið sakna ég Vigdísar Finnbogadóttur á tímum sem þessum því hún hefur það sem núverandi forseti hefur ekki, nefnilega þann hæfileika að sameina þjóðina.
mbl.is Afhending bóka dróst af gildri ástæðu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband